Höfum opnað aftur eftir....

stutt sumarfrí Cool

Endilega kíkið á okkur..... c-ya

Skapandi sumarstörf !

Viltu vinna við leiklist eða tónlist í sumar?

 

Í sumar munum við lífga upp á ferðamannabæinn Akureyri með tónlist, leiklist og gjörningum. Leitað er að ungu listrænu fólki sem hefur áhuga á að vera með í leiklistarhóp í sumar undir handleiðslu verkstjóra.

Leitað er að atvinnulausum ungmennum sem vilja fá útrást fyrir sköpunar og tjáningarþörf sína.

Þetta tilboð gildir fyrir þá sem hafa fengið vinnu í gegnum sumarvinnu 17 ára og eldri.
Tímabilin sem um er að ræða eru:
16. júní til 15. júlí
16. júlí til 13. ágúst

Áhugasamir mæti  í inntökupróf sem verða haldin í Ungmennahúsinu Rósenborg að Skólastíg 2, föstudaginn 11. júní kl 13-15 og mánudaginn 14. júní kl 13-15.  
Nánari upplýsingar veitir Kristján Bergmann í síma 460-1240 eða í gegnum tölvupóst á kbergmann@akureyri.is
Hlökkum til að sjá ykkur!

Facebook

Endilega addið okkur á Facebook.... alltaf eitthvað að gerast þar inni! Daglegar uppfærslur, fróðlegur, stuð video og fleira. Ungmenna-Húsið í Rósenborg... það er málið.

Endilega kíkið svo á þetta video af Viljari... hann er að dansa... er óendanlega klár og ef þig langar að dansa... hafðu þá endilega samband við okkur í Ungmenna-Húsinu í síma 460-1240 eða á kbergmann@akureyri.is. OG ef þið eruð á facebook, þá er hægt að hafa samband við Viljar þar undir nafninu Viljar Nuka Gibson.

http://www.youtube.com/user/hitabrusi

 

HITABRUSI

 

 

http://www.youtube.com/watch?v=WQp_0YsL3_A

Þetta hérna fyrir ofan er videohlekkur, á þessu videoi er fastakúnni okkar og vinur, hann Viljar Már að dansa Lock and Pop... hann er að leita að einhverjum sem hafa áhuga á svona dansi til þess að gigga með! Hann kemur hingað næstum daglega til að dansa (hans útrásaraðferð og líkamsrækt), ef þú hefur áhuga á að vera með... ekki hika við að hafa samband!

 

Ráðningaþjónustur!



Talið er að einungis um 35% starfa séu auglýst opinberlega, þ.e. í
dagblöðum og tímaritum, en 65% starfa séu ekki auglýst.  Það er því
atvinnuleitandans að vera duglegur að „finna“ þessi störf. (vmst.is, 2009).

Kíktu á þessar síður ef þú ert að leita að vinnu: ATH þessi listi er ekki tæmandi!

Ef þið þurfið frekari hjálp við atvinnuleit eða gerð ferilskráa, kíkið þá á Mumma í Ungmenna-Húsinu eða hringið í 460-1240





Ráðningarþjónusta:

Job Agencies

Vefsíða:

Website

Netfang:

Email

 Vinnumálastofnun

www.vmst.is 

 

Ábendi

www.abendi.is

abendi@abendi.is

Atvinnumiðstöð stúdenta

www.am.is/atvinna

atvinna@fs.is

Job.is

www.job.is

 

Liðsauki

www.lidsauki.is

lidsauki@lidsauki.is

Capacent

www.capacent.is

capacent@capacent.is

Mannval

www.mannval.is

mannval@mannval.is

Ráðningarþjónustan

www.radning.is

radning@radning.is

Strá ehf

www.stra.is

stra@stra.is

Vinna.is

www.vinna.is

radningar@vinna.is

Vinnumiðlun Höfuðborgarsvæðisins

www.vinnumidlun.is

vinnumidlun.hb@svm.is

Hagvangur

www.hagvangur.is

 

 

 

 

Brettafélag Akureyrar kynnir....

Á Laugardaginn 27 febrúar verður haldið Brettamót í Hlíðarfjalli.

Þetta verður Bigjump mót með einum kicker/palli.

Þetta verður tvískiptur pallur svo flest allir ættu að geta tekið þátt.

Brettafélag Akureyrar ætlar að vera með 2 aldursflokka í þessu 16 og yngri og 17 og eldri.

Ef það verður nægilega þáttaka verður líka stelpu flokkur þannig að ég mæli með að sem flestar reyni að mæta.

Ég ætla að reyna að redda einhverjum verðlaunum fyrir þetta mót en það er ekki alveg 100% að það verður.
Ef ég næ ekki að redda vinningum þá verður þetta bara Glory og status og skemmtun fyrst og fremst.

Ef næg þátttaka verður í flestum flokkum verða 3 run/stökk á mann og
2 bestu gilda. 5 bestu úr hverjum hóp fara áfram í final og þar fá þeir
2 run til að sanna sig og besta stökkið gildir.

Við í brettafélagi akureyrar erum að þessu aðallega til að sameina
aðeins brettafólkið og hafa það gaman. Ef veður verður leiðinlegt þá
breytum við þessu bara í session og allir fá að leika sér eins og þeir
vilja.

Klukkan 9 um kvöldið verður svo Brettabíó í Rósenborg í gamla Brekkuskóla og sýnd verður einhver skemmtileg brettamynd.

Allir að mæta kátir í hlíðarfjall um helgina og skemmta sér.

Kv. Viktor Hjartarson!

http://brettafelag.is/

Sigurmyndirnar úr Stulla 2009....

Eru hér fyrir neðan... endilega kíktu á ef þér leiðist:

 

http://www.youtube.com/results?search_query=TheStulli&search_type=&aq=f

 

Tónleikar...

Já það verða epískir tónleikar föstudagskvöldið 8. janúar. Með Dimma !

Húsið opnar kl. 19:00 og standa tónleikarnir til kl. 22:00.

 

1000. kr. inn... þetta er bara of gott til að sleppa því!

Opnun yfir jólin

Kæru vinir athugið. Það síðasti opnunadagur þessa árs er 23. des. Eftir það förum við í jólafrí og opnar húsið aftur þann 4. janúar.

 

Vonandi eigið þið yndisleg jól og takk fyrir árið sem er að líða. Það hefur verið alveg hreint magnað hér í húsinu hvað þátttöku varðar =)

We salut you!

Jólaball

Fjörfiskarnir verða með jólaball í húsinu. þann 11. des. Það kostar 500 kr. inn og er snakk og gos innifalið =)

Syndicate content